Álfatröð 4A og 4B

700 Egilsstaðir
5
3
7
247 m²
79.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Parhús/ Parhús á einni hæð
  • Stærð 247 fm
  • Herbergi 7
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 3
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1981
  • Brunabótamat 131.600.000
  • Fasteignamat 94.950.000

Vel staðsett og spennandi fimm herbergja fasteign (137 m²) ásamt stórum bílskúr (53,9 m²) og annarri tveggja herbergja íbúð (57 m²) tilbúinni til útleigu eða eigin nota. Samtals 247,9 m².
Þak endurnýjað fyrir fimm árum og baðherbergi fyrir ca. átta árum. 

Stofa er sérlega rúmgóð með flísum á gólfi sem og hol sem einnig er nokkuð rúmgott. Í eldhúsi eru korkflísar á gólfi, þar er eldri innrétting og góður borðkrókur. Inn af eldhúsi er búr. Baðherbergi var endurnýjað fyrir ca. 8 árum. Baðherbergi er flísalagt og með sturtu. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með dúk á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum. Í íbúðinni er ágætt þvottahús með geymslulofti. Innbyggður sánuklefi er í þvottahúsi. Gestasalerni er inn af holi.
Bílskúr er stór með tveimur bílhurðum.
Auka, tveggja herbergja íbúð er hluti af eigninni. Þar eru stofa og eldhús í opnu rými með flísum á gólfi. Baðherbergi er flísalagt og þar er sturta. Í íbúðinni er þvottahús með máluðu gólfi og flísalögð forstofa. Svefnherbergi er með parketi á gólfi og þar er fimmfaldur fataskápur.
Hellulögð stétt er framan við hús og bílskúr með hitalögnum í hluta. Í snyrtilegum garðinum er yfirbyggður heitur pottur. 

Álfatröð 4A og 4B, 700 Egilsstaðir

Senda fyrirspurn um eignina