Gjaldskrá
FASTEIGNASALAN INNI EHF.
EGILSSTAÐIR S: 580-7905
Gjaldskrá 16.01.2025
Söluþóknun fyrir sölu fasteigna
Lágmarksþóknun fyrir sölu fasteigna: kr. 435.000,- auk virðisaukaskatts (539.400 m/vsk)
Þóknun fyrir sölu fasteigna: 2,5% af söluverðmæti auk virðisaukaskatts, eða samtals 3,1%.
Sé eign í einkasölu: 1,6% - 1,95% auk virðisaukaskatts (1,984% - 2,418% m/vsk).
Söluþóknun fyrir jarðasölu
Lágmarksþóknun fyrir sölu jarða: kr. 470.000,- auk virðisaukaskatts (582.800 m/vsk)
Þóknun fyrir jarðasölu: 2,8% af söluverðmæti auk virðisaukaskatts, eða samtals 3,472%.
Sé jörð í einkasölu: 2,3% auk virðisaukaskatts, eða samtals 2,852%.
Söluþóknun fyrir fyrirtækjasölu
Lágmarksþóknun fyrir sölu fyrirtækja: kr. 525.000,- auk virðisaukaskatts (651.000 m/vsk).
Þóknun fyrir fyrirtækjasölu: 3-7% auk virðisaukaskatts (3,72-8,68%) af söluverðmæti þ.m.t. birgðum.
Innifalið í söluþóknun
Fyrir fast gjald kr. 39.900,- (íbúðarhúsnæði) kr. 49.900 (jörð) kr. 250.000 (fyrirtæki) (auk vsk.) kemur sölumaður frá fasteignasölunni og verðmetur eignina, útbýr ástandslýsingu og tekur myndir af eigninni.
Fasteignin er síðan skráð í sölukerfi fasteignasölunnar, en allar eignir eru uppfærðar beint inn á internetið og auglýst í dagskrárblöðum á kostnað seljanda. Fyrsta auglýsing í dagskrárblaði er innifalin í söluþóknun, seljist eignin.
Gjaldtökur fyrir auglýsingar er kostnaðarverð auglýsinganna, auk virðisaukaskatts, þannig að ekki er um álagningu af hálfu Inni fasteignasölu að ræða.
Löggiltur fasteignasali sér um alla skjalagerð, þ.á.m. kaupsamnings- og afsalsgerð, umsjón með uppgjöri á fasteigna- og brunabótaiðgjöldum og útvegun veðleyfa. Þá sér fasteignasalan um að ganga frá skuldaraskiptum vegna nafnabreytinga á lánum o.s.frv.
Starfsmenn fasteignasölunnar sjá um að koma skjölum í þinglýsingu til viðkomandi sýslumanns sé þess óskað og er af hálfu fasteignasölunnar mælt með því að sá háttur sé hafður á.
Fasteignasalan hefur reglulega samband við Íbúðalánasjóð eða aðrar fjármálastofnanir til að fylgjast með því að afgreiðsla fasteignaveðbréfa gangi eðlilega fyrir sig. Þá tekur fasteignasalan að sér ráðgjöf fyrir seljendur og kaupendur og reiknar út greiðslubyrði lána o.fl.
Kaupendum og seljendum er bent á að þegar út í fasteignaviðskipti er komið er yfirleitt verið að fjalla um háar fjárhæðir þannig að miklu skiptir að vel takist til. Fasteignasalan INNI ehf. er löggilt fasteignasala með ábyrgðatryggingu á bak við sig til verndar viðskiptavinum sínum.
Af hálfu starfsmanna Fasteignasölunnar INNI ehf. er lögð rík áhersla á vönduð og fagleg vinnubrögð og góða þjónustu.
Ekki innifalið í söluþóknun
Lyklagjald: kr. 15.900 auk aksturs og virðisaukaskatts. Ef seljandi óskar eftir því að Inni geymi lykil og fari með áhugasömum að skoða (sýni eignina) bætist þetta gjald við fyrir hvert skipti.
Gagnaöflunargjald: kr. 29.900 auk vsk. (37.076 kr. m/vsk). Innifalið í gagnaöflunargjaldi er útlagður kostnaður vegna gagna (oft: 3 x þinglýsingarvottorð, vottorð Fasteignaskrár Íslands, teikningar, eignaskiptasamningur, yfirlýsing húsfélags, lóðaleigusamningur, heimildarbréf, útprentun úr hlutafélagaskrá).
Þegar útlagður kostnaður nemur hærri fjárhæð en 50.000 kr. innheimtist viðbótarkostnaður sérstaklega.
Uppgreiðsla lána og öflun veðleyfa. Við mælum með því að seljendur semji við fjármálastofnun um þá þjónustu.
Þinglýsing
Fyrir þinglýsingu kaupsamnings greiðist 0,8% stimpilgjald af fasteignamati hinnar seldu eignar auk kr. 2.700 í þinglýsingargjald, sé kaupandi að kaupa í fyrsta sinn þá er veittur 50% afsláttur af stimpilgjaldi.
Ef kaupandi er lögaðili greiðist 1,6% stimpilgjald.
Veðskuldabréf sem tekin eru vegna kaupa á fasteign eru stimpilfrjáls, en greiða skal kr. 2.700.- í þinglýsingagjald auk mögulegs lántökugjalds til lánveitanda.
Fyrir þinglýsingu veðleyfa og umboða greiðist kr. 2.700.
Kaupandi fasteignar greiðir gjöld þessi að meginstefnu til.