Hátún 24

735 Eskifjörður
5
2
7
209 m²
55.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Einbýli/ Einbýlishús á pöllum
  • Stærð 209 fm
  • Herbergi 7
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1966
  • Brunabótamat 103.000.000
  • Fasteignamat 49.400.000

Einbýlishús á pöllum með innbyggðum bílskúr á góðum útsýnisstað við Hátún á Eskifirði.
Á efri hæð er flísalögð forstofa ásamt flísalögðu þvottahúsi þar inn af. Einnig er lítið gestasalerni inn af forstofu. Í eldhúsi er flísar, eldri innrétting og borðkrókur. Stofa er uppi á efsta palli (fjögur þrep) hún er rúmgóð og þaðan er sérlega gott útsýni yfir Eskifjörð. Innangengt er í bílskúr af efri hæð en bílskúr er nokkuð hefðbundinn með máluðu gólfi og bílhurð með sjálfvirkum hurðaopnara. Á neðri hæð er hol með parket á gólfi. Þar eru einnig fjögur svefnherbergi, öll með parket á gólfi og útgengt er úr einu þeirra á svalir (vantar handrið). Baðherbergi á neðri hæð er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta, handklæðaofn og innrétting. 
Á neðsta palli hússins er talsvert rými sem búið er að hreinsa alveg út og er þannig séð fokhelt í dag og tilbúið til uppbyggingar en þarna var áður lítil íbúð með sér inngangi.
Bílastæði er vel frágengið með hellum.

Hátún 24, 735 Eskifjörður

Senda fyrirspurn um eignina