Bláargerði 65

700 Egilsstaðir
3
1
4
165 m²
92.800.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Parhús/ Parhús á einni hæð
  • Stærð 165 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2019
  • Brunabótamat 103.200.000
  • Fasteignamat 81.050.000

INNI fasteignasala 580 7905 auglýsir í einkasölu: Glæsilegt parhús sem er byggt árið 2019 og er samtals 165,5 fm að stærð þar af er íbúðarhluti 96,3 fm og bílskúr 69,2 fm. Eignin stendur á lóð sem býður upp á mikla möguleika til breytinga og stækkunar. Við lóðina er rólegt leiksvæði. 
Gengið er inn í forstofu með fataskáp og þar inni er háaloft. Frá forstofu er komið inn á gang. Hægra megin við ganginn er opið og bjart alrými með eldhúsi og stofu. Inn af alrýminu eru þrjú svefnherbergi öll rúmgóð og af svipaðri stærð. Parket er á gólfum í forstofu, gangi, alrými og svefnherbergjum.
Vinstra megin við forstofu er baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum upp í um 1,8 metra hæð. Á baðherberginu er rúmgóð sturta. Beint á móti baðherberginu er þvottahús með góðri vinnuaðstöðu og geymsluplássi og þar eru flísar á gólfi.
Frá gangi er innangengt í 69,2 fm bílskúr. Bílskúrinn býður upp á fjölmarga möguleika fyrir nýja eigendur, meðal annars stækkun á íbúðarhluta, viðbót við svefnherbergi eða útbúnað á sér rými eftir þörfum. Stærð bílskúrsins og skipulag eignarinnar skapa tækifæri til að aðlaga húsnæðið að breyttum þörfum fjölskyldunnar.
Húsið er búið innbyggðu ryksugukerfi.
Um er að ræða vel skipulagða eign frá árinu 2019 með góða nýtingu og mikla möguleika til framtíðar. 

Bláargerði 65, 700 Egilsstaðir

Senda fyrirspurn um eignina