Botnahlíð 17
710 Seyðisfjörður
4
2
5
262 m²
-
Tegund Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
-
Stærð 262 fm
-
Herbergi 5
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 1980
-
Brunabótamat 130.350.000
-
Fasteignamat 55.050.000
Mikið endurnýjað einbýlishús með innbyggðum bílskúr, fjórum svefnherbergjum og frábæru útsýni.
Árið 2016 var húsið mikið tekið í gegn að innan, m.a. var eldhús endurnýjað og rými opnuð. Árið 2021 var húsið klætt að utan, allir ofnar endurnýjaðir, þrefalt gler sett í flesta glugga, innihurðir endurnýjaðar og baðherbergi endurnýjað svo eitthvað sé nefnt. Þakjárn var endurnýjað að hluta árið 2024.
Vatnslagnir einnig að mestu endurnýjaðar árið 2021 sem og hitakútur og hurð út á verönd.
Allt parket í húsinu er vínylparket.
Á efri hæð er rúmgott og glæsilegt eldhús í opnu og björtu rými með borðstofu og setustofu. Úr eldhúsi er frábært útsýni og úr rýminu er útgengt á stóra timburverönd í fallegum garði. Stofa er sannarlega í sérrými en vel opið er á milli stofu og eldhúss og tengjast rýmin vel. Stofa er sérlega rúmgóð með upptekið loft og frábært útsýni. Falleg og hlýleg kamína er í stofu sem bæði prýðir og gefur notalegan yl. Baðherbergi er glæsilegt enda allt endurnýjað 2021. Þar eru sérvaldar ítalskar flísar og rúmgóð sturta. Þrjú svefnherbergi eru á efri hæð, öll með parket á gólfi. Þvottahús með innréttingu er inn af eldhúsi og þaðan er útgengt.
Á neðri hæð er rúmgóð forstofa og inn af henni er stórt herbergi með parket á gólfi. Lítið salerni er á neðri hæð sem og nokkuð rúmgóð geymsla. Innangengt er í stóran (59 m²) bílskúr með bílhurð og sjálfvirkum hurðaopnara.