Útgarður 6

700 Egilsstaðir
2
1
3
81 m²
44.800.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 81 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1972
  • Brunabótamat 41.900.000
  • Fasteignamat 37.650.000

Mjög fín og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á 2. hæð. Glæsilegt baðherbergi nýlega endurnýjað, endurnýjað eldhús með Brúnás-innréttingu og gólfefni flest nýleg. Frábært útsýni.
Stofa er rúmgóð með útgengt á nokkuð stórar svalir við suðurhlið hússins og frábæru útsýni. Innrétting í eldhúsi var endurnýjuð ca. 2016, þar er falleg Brúnás-innrétting. Baðherbergi var allt endurnýjað 2023, þar eru flísar á gólfi og gólfhiti, fín innrétting og handklæðaofn. Mjög fín aðstaða fyrir þvottavél er á baðherbergi. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parket á gólfi, en nýlegt parket (2023) er á flestum rýmum íbúðarinnar. Lítil geymsla er í íbúðinni auk stærri geymslu á jarðhæð. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Vel staðsett eign, örskammt frá skólum og íþróttamiðstöð.

Útgarður 6, 700 Egilsstaðir

Senda fyrirspurn um eignina