Furuvellir 1

700 Egilsstaðir
4
2
5
202 m²
97.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Einbýli
  • Stærð 202 fm
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1978
  • Brunabótamat 80.150.000
  • Fasteignamat 71.950.000

Virkilega fínt og vel staðsett fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með frístandandi bílskúr og sér stúdíóíbúð. Eign sem augljóslega hefur verið haldið vel við alla tíð.
Þakjárn og pappi voru endurnýjuð fyrir ca. 5 árum, vatnslagnir eru allar nýjar, baðherbergi er endurnýjað, parket í húsinu er nýlegt sem og allar innihurðir og verið er að endurnýja stúdíóíbúð að hluta.

Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Eldhús er einnig rúmgott með hvítri innréttingu, borðkrók og flísum á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús og þaðan er útgengt á stóra hellulagða verönd í bakgarði. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði baðkar og sturta. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í þremur herbergjum. 
Bílskúr er tvískiptur. Fremst er hefðbundinn og rúmgóður bílskúr með bílhurð en undir honum er snyrtilegur kjallari með nokkuð góðri lofthæð, mjög fínt rými. Í aftari hluta bílskúrs er stúdíóíbúð með sérinngangi. Mjög fín íbúð með sérsvefnrými/herbergi í kjallara undir íbúðinni. Þar er opnanlegt gluggafag.
Aðkoma að húsinu er steypt sem og verönd framan við húsið en þar er einnig hellulögð verönd. Á milli bílskúrs og íbúðarhúss eru hellur sem og stór hellulögð verönd bakatil.
Garður er afar vel hirtur og fallegur.
Mjög spennandi og vel staðsett eign, örstutt frá skólum og íþróttamiðstöð.

Furuvellir 1, 700 Egilsstaðir

Senda fyrirspurn um eignina