Höfðavegur 4

780 Höfn í Hornafirði
3
1
4
100 m²
48.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 100 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1987
  • Brunabótamat 54.850.000
  • Fasteignamat 46.200.000

Mjög flott, vel skipulögð og nokkuð mikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á 1.hæð. Stofa og eldhús í opnu og rúmgóðu rými með útgengt á timburverönd í garði. Eldhús og baðherbergi var endurnýjað 2017-2018.
Forstofa er opin með parket á gólfi, þar er fataskápur sem og opið hengi. Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi. Falleg og rúmgóð innrétting er í eldhúsi. Úr stofu og eldhúsi er útgengt á timburverönd. Baðherbergi er allt endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Þar er sturta, handklæðaofn og aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parket á gólfi og þrefaldur fataskápur er í einu herbergi.
Geymsla er tilheyrir íbúðinni er einnig á 1. hæð - við hliðina á íbúðinni.

Höfðavegur 4, 780 Höfn í Hornafirði

Senda fyrirspurn um eignina