Sjávargata 1

730 Reyðarfjörður
0
0
0
2342 m²
Tilboð
Til baka Deila
  • Tegund Atvinnuhús
  • Stærð 2342 fm
  • Herbergi 0
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1954
  • Brunabótamat 1.098.220.000
  • Fasteignamat 280.400.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Vel staðsett og stórt atvinnuhúsnæði sem samanstendur af nokkrum húsum sem mynda eina heild. M.a. er um að ræða sali, frystiklefa og geymslur. Húsin standa miðsvæðis, í hjarta Reyðarfjarðar.
Í heildina er hér um að ræða 2342,2 m² atvinnuhúsnæði á ríflega 11 þúsund m² lóð. Húsin mynda eins og áður sagði eina heild og er opið milli þeirra flestra. Tveir frystiklefar eru hluti af eigninni og var sá yngri byggður árið 1997, er hann 559,4 m² með góðri lofthæð. Sá eldi er ekki eins stór og með minni lofthæð þó að hún sé hátt í 4 metrar. Nokkrir fremur stórir og samtengdir salir sem áður fyrr voru vinnslusalir, verkstæði, vélasalur o.fl. eru hluti af eigninni.
Tæmandi lýsingu er ekki hægt að gera á eigninni en ljóst er að kominn er tími á eitthvað viðhald og endurbætur og áhugasamir aðilar eru því hvattir til að skoða eignina vel.
Eignin selst í einu lagi sem ein heild og í því ástandi sem eignin er og því er mælt með að áhugasamir aðilar skoði eignina vel með fagmanni.
Tilboð óskast í eigninna!
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.

Sjávargata 1, 730 Reyðarfjörður

Senda fyrirspurn um eignina