Norðurtún 43
700 Egilsstaðir
4
2
6
192 m²
-
Tegund Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
-
Stærð 192 fm
-
Herbergi 6
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 2006
-
Brunabótamat 97.400.000
-
Fasteignamat 85.950.000
INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Stofa og eldhús eru í opnu og rúmgóðu rými með upptekið loft og útgengt á steypta verönd í sérlega fallegu umhverfi með villta náttúruna í bakgarðinum. Veröndin er með snjóbræðslukerfi og þar er heitur pottur og grillskýli. Í eldhúsi er mjög rúmgóð innrétting með eyju. Sjónvarpshol er í miðju húsinu og þar er loft einnig tekið upp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði baðkar og sturta sem og fín innrétting og handklæðaofn. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Parket er á þremur herbergjum en flísar á einu og er mögulegt að fjarlægja það herbergi og stækka stofuna enn frekar. Í þvottahúsi er fín innrétting og þaðan er útgengt í garð. Flísar eru í forstofu sem og gestasalerni þar inn af. Gott geymslupláss er á háalofti sem er yfir hluta af húsinu.
Bílskúr er nokkuð hefðbundinn með máluðu gólfi, bílhurð og geymslu sem hólfuð er af innst í bílskúr. Bílastæði er steypt og með snjóbræðslukerfi sem og aðkoma að húsi.
Nokkuð stór útigeymsla er í garði; rafmagn er í geymslu og henni haldið frostlausri með rafmagnsofni.
Hiti er í öllum gólfum hússins.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.