Álfheimar

720 Borgarfjörður (eystri)
32
34
33
910 m²
448.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Atvinnuhús/ Hótel / Gistiheimili
  • Stærð 910 fm
  • Herbergi 33
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 32
  • Baðherbergi 34
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2008
  • Brunabótamat 460.450.000
  • Fasteignamat 86.490.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Í einstöku umhverfi Borgarfjarðar eystri standa Álfheimar hótel sem samanstendur af þremur húsum á einni hæð og 32 herbergjum sem öll eru með sér baðherbergi. Veitingasalur með leyfi fyrir 60 manns í sæti er í einu húsanna ásamt vel útbúnu og rúmgóðu eldhúsi.
Hótelið er í fullum rekstri og mögulegt að kaupa einnig rekstur félagsins.


Húsin þrjú eru byggð í þremur áföngum og var nýjasta húsið byggt árið 2011. Í því eru 14 herbergi og þar af eitt stórt fjölskylduherbergi. Auk þess er þvottaaðstaða fyrir rekstraraðila í húsinu.
Árið 2009 var hús nr.2 byggt. Þar eru 8 herbergi, veitingasalur og eldhús. Tvö af þessum átta herbergjum eru þriggja manna með aðgengi fyrir fatlaða.
Fyrsta húsið hjá Álfheimum var byggt árið 2008. Er það bjálkahús sem síðar var klætt að utan og einangrað. Í húsinu eru 10 herbergi tilbúin til útleigu.

Dásemdir Borgarfjarðar eystra þarf vart að kynna enda staðurinn notið mikilla og aukina vinsælda ferðamanna undanfarin ár.
Umhverfi Borgarfjarðar er ein stór náttúruperla með óteljandi gönguleiðum, stuttum sem löngum. Upplýsingar um Borgarfjörð eystri má finna á vefnum Borgarfjörður eystri þar sem nálgast má endalausan fróðleik um afþreyingu, mat & drykk og margt, margt fleira.
 

Álfheimar , 720 Borgarfjörður (eystri)

Senda fyrirspurn um eignina