Austurtún 6
700 Egilsstaðir
3
2
4
162 m²
-
Tegund Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
-
Stærð 162 fm
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 2026
-
Brunabótamat 0
-
Fasteignamat 15.050.000
INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel staðsett fjögurra herbergja 162,6 m² einbýlishús með innbyggðum bílskúr í byggingu á Egilsstöðum. Fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í grunnskóla, menntaskóla og íþróttamiðstöð.
Mögulegt að fá húsið afhent á ýmsum byggingarstigum.
Stofa og eldhús í opnu rými með útgengt í garð. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað þeirra inn af hjónaherbergi. Innangengt í bílskúr.
Kíkið á flott skipulag hússins í 3D-myndum hér fyrir neðan.
3D-myndir:
Húsið að utan!
Skipulag að innan!
Um er að ræða vandað hús úr steyptum samlokueiningum frá MVA.
Innveggir eru einnig úr forsteyptum einingum sem og sökkull.
Botnplata er steypt með gólfhita í öllum rýmum.
Þakið er einhalla timburþak og einangrað með 220 mm steinull og klætt með tvöföldu lagi af ábræddum tjörudúk. Þakkantur er allur klæddur með 4 mm þykkri litaðri álklæðningu.
Gluggar og hurðir eru af hæsta gæðaflokki úr álklæddu timbri og tvöföldu gleri.
Kaupandi sem kemur snemma að borðinu getur að einhverju leyti haft áhrif á efnisval.
Byggingarstig 2 – Fokhelt með grófjafnaðri lóð: (afhending ca. júlí/ágúst 2026) Verð: 84.000.000 kr.
Þar sem húsið er úr steyptum einingum frá MVA verður það í raun komið lengra en byggingarstig 2 segir til um þar sem allir veggir verða komnir, (líka allir milliveggir) með raflögnum (rör) og dósum. Allir veggir hússins verða tilbúnir undir spörslun og málningu á þessu afhendingarstigi.
Byggingarstig 3 – Tilbúið til innréttinga, með grófjafnaðri lóð: (afhending ca. September 2026) Verð: 99.500.000 kr.
Byggingarstig 4: - Fullklárað hús, með grófjafnaðri lóð: Innréttingar frá Brúnás. Flotað gólf. Flísar á gólfum í þvottahúsi, forstofu og baðherbergjum ásamt sturtuhorni. Loft klædd með loftadúk. (afhending ca. Nóvember 2026) Verð: 114.900.000 kr.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af brunabótamati) eftir að eignin hefur verið afhent. Reglugerð um skipulagsgjald.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.