Fagrabrekka 2
691 Vopnafjörður
4
2
4
176 m²
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 176 fm
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 1974
-
Brunabótamat 76.000.000
-
Fasteignamat 30.250.000
INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Komið er inn í rúmgóða dúklagða forstofu. Þaðan er gengið inn á gang með plastparketi á gólfi. Til vinstri er stofa, beint áfram eldhús og til hægri herbergjagangur. Lagnir upprunalegar. Glænýr 300 l hitakútur.
Lítið salerni til hægri, panelklætt. Áfram inn ganginn eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og hjónaherbergi. Eldhúsið er panelklætt með nýlegri eldhúsinnréttingu (tveggja ára gömul), ofn í vinnuhæð, uppþvottavél fylgir með, borðkrókur. Þar inn af er búr, hefðbundið. Úr eldhúsi er einnig gengið inn í flísalagt þvottahús. Úr þvottahúsi er gengt út í garð, á steyptan pall milli húss og bílskúrs og síðan timburpallur sem er meðfram bílskúr. Skipt hefur verið um þrjár rúður.
Í stofu, sem er meðfram suðurhlið hússins, hefur verið stúkað af herbergi sem auðvelt er að fjarlægja og stækka stofuna að nýju.
Bílskúr er mjög rúmgóður en var við skoðun fullur af dóti. Steypt gólf, bílhurð og manngeng hurð. Innst eru stúkuð af herbergi, köld geymsla í norðvesturhorni og annað herbergi í suðvesturhorni. Geymsluloft. Þak á bílskúr þarfnast viðhalds.
Skipt var um járn á þaki fyrir ríflega 10 árum síðan. Hlaðið hús. Ljósleiðari er kominn inn í húsið. Sameiginleg rotþró fyrir þrjú hús sem er þjónustuð af sveitarfélaginu.