Ránargata 3
710 Seyðisfjörður
4
1
5
198 m²
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 198 fm
-
Herbergi 5
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 1909
-
Brunabótamat 82.600.000
-
Fasteignamat 42.350.000
INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Flísar eru í forstofu og þar inn af er komið í rúmgott hol með parket á gólfi. Hol, stofa og eldhús eru í nokkuð opnu rými með parket á gólfi og falleg innrétting er í eldhúsi. Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús með innréttingu. Útgengt er úr þvottahúsi. Baðherbergi sem allt hefur verið endurnýjað er rúmgott og glæsilegt með flísapanil á gólfi. Á baðherbergi er sturta og falleg innrétting.
Á efri hæð (í risi) er hol með parket á gólfi og fjögur svefnherbergi. Parket er á öllum svefnherbergjum. Geymsla er einnig á efri hæð.
Undir húsinu er fremur hrár kjallari (ekki full lofthæð). Góðir möguleikar að gera kjallara að snyrtilegri geymslu.
Við húsið stendur frístandandi bílskúr með skráð byggingarár 2022.
Mjög spennandi eign á Seyðisfirði.