Botnahlíð 13

710 Seyðisfjörður
4
2
7
222 m²
59.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Einbýli
  • Stærð 222 fm
  • Herbergi 7
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1979
  • Brunabótamat 114.450.000
  • Fasteignamat 50.650.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Mjög gott einbýlishús á góðum útsýnisstað á Seyðisfirði. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og rúmgóður bílskúr. Eignin er almennt í góðu ástandi.
Stofa er rúmgóð og björt með upptekið loft og útgengt í garð. Parket er á gólfi í stofu eins og í sjónvarpsholi þar fyrir framan. Stigi milli hæða er í holi. Í eldhúsi er eldri innrétting í ljómandi góðu ástandi, þar er dúkur á gólfi og góður borðkrókur. Inn af herbergjagangi á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum. Baðherbergi er flísalagt og þar er bæði baðkar og sturta. Þvottahús er afar rúmgott með innréttingu. Útgengt er úr þvottahúsi. 
Á neðri hæð er flísalögð forstofa og þar inn af er gestasalerni með sams konar flísum. Á neðri hæð er svefnherbergi, í raun tvö samliggjandi herbergi. Lagnir og annað fyrir sauna er á neðri hæð en hefur fram til þessa verið nýtt sem geymsla.
Innangengt er í 35,7 m² bílskúr sem er nokkuð hefðbundinn.

Botnahlíð 13, 710 Seyðisfjörður

Senda fyrirspurn um eignina