Baugsvegur 5
710 Seyðisfjörður
5
2
6
205 m²
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 205 fm
-
Herbergi 6
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 5
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 1967
-
Brunabótamat 92.150.000
-
Fasteignamat 41.250.000
INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Framan við húsið er hellulögð verönd. Hiti er í aðkomu að húsi og tröppum. Þak var nýlega endurnýjað sem og allir gluggar í húsinu. Allt rafmagn í húsinu hefur verið endurnýjað sem og allir ofnar og ofnalagnir.
Stofa og borðstofa eru í sérlega rúmgóðu rými með parket á gólfi og opið inn í eldhús. Í eldhúsi eru flísar á gólfi og þar er vönduð innrétting. Á baðherbergi er bæði sturta og hornbaðkar með nuddi. Flísalagt gestasalerni er í húsinu. Eins og áður sagði eru fimm svefnherbergi í húsinu, öll með parket á gólfi.
Innangengt er í afar snyrtilegan og vel frágenginn bílskúr (51,6 m²) með flísum á gólfi og rafknúinni bílskúrshurð. Hitastrengir eru í þakrennum og niðurföllum bæði frá húsi og bílgeymslu.
Mögulegt er að töluvert af heimilistækjum fylgi með í kaupunum, svo sem þvottavél, þurrkari, uppþvottavél, örbylgjuofn o.fl.