INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel staðsett og rúmgott atvinnuhúsnæði við Egilsbraut í Neskaupstað. Húsið er í nokkuð góðu ástandi þó vissulega sé komin tími á eitthvað viðhald eins og gengur og gerist.
Á jarðhæð hefur um árabil verið sparisjóður. Þar er stórt opið rými með tveimur skrifstofum, fundarherbergi og kaffistofa.
Fjögur skrifstofurými eru á efri hæð ásamt opnu rými og salernisaðstöðu.
Í kjallara er góð lofthæð og þar mikið og gott geymslupláss.