INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Einbýlishús á tveimur hæðum með fjórum til fimm svefnherbergjum og tvöföldum 44,1 m² bílskúr.Stofa er björt og rúmgóð með fallegu útsýni og parket á gólfi. Parket er einnig í rúmgóðu eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt, þar er baðkar með sturtu í og aðstaða/tengi fyrir þvottavél en þvottahús á neðri hæð hefur fram til þessa ekki verið nýtt sem slíkt. Í húsinu eru 4-5 herbergi en opið er á milli tveggja herbergja (hægt að loka með harmoníkkuhurð) og því ekki hægt að tala um fimm herbergi nema þau yrðu betur aðskilin sem er vissulega mögulegt.
Á neðri hæð er eins og áður sagði þvottahús sem er fremur hrátt í dag og hefur mest verið nýtt sem geymsla. Á neðri hæð er innangengt í tvöfaldan og rúmgóðan bílskúr með tveimur bílhurðum. Á neðri hæð er einnig óskráð og nokkuð stórt rými sem aldrei hefur verið klárað en bíður upp á ýmsa möguleika.
Inngangur í húsið er bæði á neðri og efri hæð.
Mjög áhugaverð eign sem þarfnast orðið einhverrar endurnýjunar hjá nýjum tilvonandi eigendum en möguleikarnir á flottri eign eru sannarlega til staðar.