INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög fallegt og virkilega vel staðsett einbýlishús með fjórum svefnherbergjum í gamla bænum á Egilsstöðum. Timburverönd með heitum potti í fallegum og vel grónum garði.Stofa er nokkuð rúmgóð með parket á gólfi. Flísar eru í eldhúsi og þar er góður borðkrókur. Í miðju hússins er hol með parket á gólfi og arni. Baðherbergi er flísalagt með hita í gólfi. Þar er fín innrétting og sturta. Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni, öll með parket á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt á timburverönd í garði. Fjórða svefnherbergið er í kjallara, einnig með parket og þar er hiti í gólfi. Sér inngangur er í kjallara. Stigi niður í kjallara er úr holi. Þar er komið niður í nokkuð rúmgott þvottahús. Útgengt úr þvottahúsi.
Húsinu hefur verið haldið vel við í gegnum tíðina, allar ofnalagnir voru endurnýjaðar fyrir nokkrum árum og neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar fyrir ca. 15 árum og eitthvað lengra síðan raflagnir voru endurnýjaðar. Baðherbergi var endurnýjað ca. 2008, timburverönd og heitur pottur kom árið 2010, nýjar þakrennur 2024, parket slípað 2025 o.m.fl.
Bílskúr var nánast alveg endurnýjaður 2021 og nýtist sem rúmgóður geymsluskúr.
Fallegt og notalegt hús á mjög góðum stað í sérlega fallegu og vel grónu hverfi.