INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
TIL LEIGU! Langtímaleiga í boði.
Vel staðsett og rúmgóð þriggja herbergja íbúð í litlu fjölbýli miðsvæðis á Egilsstöðum.Flísar eru á forstofu og þar er fataskápur. Inn af forstofu er lítið þvottahús. Parket er í stofu og holi. Úr stofu er útgengt á yfirbyggðar svalir. Í eldhúsi er flott innrétting og ágætur borðkrókur. Baðherbergi er flísalagt, þar er sturta. tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og er parket á þeim báðum sem og fataskápar. Góð geymsla er í íbúðinni.
Íbúðinni tilheyrir talsvert mikið geymslupláss í sameign sem og sér geymsla í kjallara.
Mjög fín íbúð og sérlega vel staðsett.
Leiguverð: 270 þús. á mánuði fyrir utan hita og rafmagn.