Miðbraut 19, 690 Vopnafjörður
16.000.000 Kr.
Einbýli
4 herb.
98 m2
16.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1954
Brunabótamat
45.400.000
Fasteignamat
15.900.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Lítið einbýlishús með þremur svefnherbergjum á fallegum stað á Vopnafirði.
Gengið er upp steyptar tröppur og komið inn í forstofu. Þaðan er komið á herbergjagang þar sem til vinstri er rúmgóð stofa, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Annað herbergjanna er með stórum innbyggðum fataskáp. Á baðherbergi er baðkar, innrétting með vaski og skápur. Til hægri er eldhús með upprunalegri innréttingu og inn af því er búr. Á gangi er einnig þvottahús og inn af því er þriðja svefnherbergið þar sem er innnbyggður fataskápur. Útgengt er í bakgarð úr þvottahúsi.
Gluggar, þak, vatns- og raflagnir eru upprunalegar. Loftplata er steypt. Húsið er að innan að mestu leyti upprunalegt og þarfnast viðgerða/endurbóta á ýmsum stöðum. Lítil kompa er undir tröppum sem liggja að útidyr hússins.
Vel staðsett hús með góða möguleika.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.