INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel staðsett og fallegt einbýlishús á Fáskrúðsfirði með fimm svefnherbergjum.Gengið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp. Inn af forstofu er flísalagt þvottahús með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Frá forstofu er komið á parketlagt hol. Frá holi eru til vinstri tvö frekar lítil svefnherbergi, bæði með parketi á gólfi. Frá holi er einnig annað herbergi með parketi á gólfi sem nýtist sem setustofa í dag. Gengt er frá holi á herbergjagang þar sem eru tvö svefnherbergi, annað minna þar sem dúkur er á gólfi og hjónaherbergi. Hjónaherbergi er nokkuð stórt, parket er á gólfi og þar er fjórfaldur fataskápur en eldri skápur hefur verið tekinn úr. Á gangi er baðherbergi sem var endurnýjað fyrir ca 5 árum og sett hiti í gólf, nýjar vatsnlagnir, sturta með sturtugleri og innréttingu. Flísar eru á gólfi og fibo plötur á veggjum. Til hægri frá holi er rúmgott eldhús og stofa. Í eldhúsi er stór innrétting frá Brúnási sem lítur vel út og er með helluborði, tvöföldum vaski, bakaraofni í vinnuhæð, uppþvottavél og glerskáp. Í eldhúsi er einnig borðkrókur og flísar eru á gólfi. Stofa er parketlögð og þar eru stórir gluggar til suðurs með mjög fallegu útsýni. Frá stofu er svalahurð á timbursvalir með timburhandriði. Undir svölum er gróf útigeymsla. Inn af eldhúsi er ,,auka" inngangur í húsið þar sem gólf er steypt og málað og innrétting er á vegg. Frá þessu rými er svo gengt í tvær litlar geymslur og úr annari þeirra er hitakútur (sem er nýr) og þar er hægt að komast upp á háaloft.
Búið er að skipta um gler í öllum gluggum í húsinu og þá er einn gluggi í eldhúsi nýr. Húsið er klætt með stein klæðningu. Inngangur hússins er aftan við það og þar var steypt stétt á síðasta ári. Ljósleiðari er nýkominn í húsið.
Húsið er staðsett rétt við grunn- og leikskóla.