Steinahlíð 5, 700 Egilsstaðir
94.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
4 herb.
177 m2
94.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
90.600.000
Fasteignamat
70.500.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Mjög flott og vel staðsett einbýlishús með þremur svefnherbergjum og stórum bílskúr. Húsið er í góðu ástandi og frá húsinu er mikið og fallegt útsýni.
Stór timburverönd er í garði og hellulögð stétt er allt í kringum húsið.

Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu og björtu rými með gegnheilt, olíuborið viðarparket á gólfi. Útgengt er úr stofu/borðstofu á hellulagða verönd og timburverönd í garði. Í eldhúsi er fín innrétting og góður borðkrókur. Flísar eru á gólfi í eldhúsi. Á neðri hæð er baðherbergi með flísum og sturtu. Afar rúmgott þvottahús með flísum og innréttingu er á neðri hæð. Úr þvottahúsi er útgengt á hellulagða stétt bakatil. 
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, parket er á tveimur herbergjum en flísar á einu. Fataskápar eru í tveimur herbergjum og fataherbergi inn af hjónaherbergi. Baðherbergi efri hæðar er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með nuddi og fín innrétting. Á efri hæð er útgengt á stóra verönd við suðurhlið hússins (bílskúrsþak). 
Bílskúr er snyrtilegur með flísar á gólfi. Geymsla er hólfuð af innst í bílskúr. 
Í garði er góður geymsluskúr með rafmagni. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.