Selás 5-7 101, 700 Egilsstaðir
59.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
158 m2
59.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1971
Brunabótamat
67.280.000
Fasteignamat
47.700.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Mjög fín og vel staðsett fjögurra herbergja íbúð í góðu ástandi, samtals 158,8 m². Eldhús allt endurnýjað árið 2020 og opnað inn í stofu/borðstofu - frábærar breytingar.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og afar rúmgóðu og björtu rými með útgengt á yfirbyggðar svalir. Parket er í stofu og borðstofu en vínylkorkur í eldhúsi. Á baðherbergi er eldri innrétting í fínu lagi, þar er baðkar með sturtu í og dúkur á gólfi. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parket á gólfi og úr einu herbergi er útgengt á yfirbyggðar svalir. Forstofa er nokkuð rúmgóð með flísar á gólfi og flísar eru einnig á þvottahúsi inn af forstofu. Nýleg innrétting (2020) er í þvottahúsi. 
Bílskúr er með málað gólf og þar er eldri bílhurð. Íbúðinni tilheyra tvær góðar geymslur í kjallara, önnur geymslan er sameing með annarri íbúð, hin er sameign með tveimur íbúðum.
Garður er snyrtilegur og vel hirtur. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.