INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Íbúðarhús ásamt útihúsum og gróðurhúsi á rúmlega 9 ha jörð 5-6 km innan við þéttbýlið á Egilsstöðum.
Tækifæri til að láta drauminn um að flytja úr þéttbýli í sveit rætast án þess að fara langt frá allri þjónustu.Íbúðarhús er 149,7 m². Þar eru stofa og eldhús í opnu rými með bæði parket og flísar á gólfi. Kamína er í rýminu. Baðherbergi er flísalagt, þar er sturta og handklæðaofn. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi og fataskápur er í einu herbergi. Gólfhiti er í stofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
Í kjallara er þvottahús og geymsla. Ekki er full lofthæð í kjallara.
Í risi er talsvert rými sem vel væri hægt að nýta á einhvern hátt þó það sé fremur hrátt og kalt rými í dag.
Við húsið er steypt plata með heitavatnslögnum, tilbúin fyrir stækkun á stofu (eða annað). Við plötuna er stigi niður í kjallara sem til stóð að nýta sem leið beint inn í kjallara. Bíslag sem nú stendur á hluta plötunnar var hugsað til bráðabirgða.
Stutt frá húsinu stendur stórt gróðurhús, líklega um 100 m² að sögn eigenda - þar er bæði vatn og rafmagn.
Útihús má nýta á margs konar hátt þó ástand þeirra gæti vissulega verið betra. Hafa húsin til að mynda verð nýtt sem smíðaverkstæði, hænsnahús o.fl.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.