INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög fínt 159,5 m² einbýlishús byggt á pöllum með 3-4 svefnherbergjum. Húsið er nokkuð mikið endurnýjað s.s. þak, vatnslagnir, baðherbergi, hluti af gluggum, mikið af gólfefnum o.fl.Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu og björtu rými með parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir. Mjög fallegt útsýni úr stofu og af svölum. Parket er í eldhúsi, þar er eldri innrétting í góðu lagi og rúmgóður borðkrókur. Baðherbergi var allt endurnýjað fyrir 3 árum. Þar er vinyldúkur í hólf og gólf og baðkar með sturtu í. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu og óhætt að segja að tvö þeirra séu vel stór en eitt kannski nokkuð hefðbundið. Fjórða ,,herbergið" er gluggalaust en með góðri loftun.Húsið er klætt að utan með steni.