INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel staðsett og stór eign, miðsvæðis í Neskaupstað. Unnið hefur verið að endurbótum en talsvert er eftir og því kjörið tækifæri fyrir smið eða einhvern handlaginn aðila.Parket er í stofu og borðstofu en dúkur í eldhúsi, þar er eldri innrétting. Inn af eldhúsi er þvottahús. Baðherbergi er flísalagt, þar er baðkar með sturtu í og fín innrétting. Þrjú svefnherbergi eru í eigninni.
Mikið en fremur hrátt pláss er í kjallara. Þar er lofthæð líklega um 2,4 m og bæði bílhurð og manngeng hurð. Auka íbúð er í húsinu sem möguleiki væri á að nýta til útleigu.
Unnið hefur verið að endurbótum á eigninni en ljóst að talsvert verk er óunnið en möguleikarnir blasa við.