INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög fín 175,7 m² íbúð með fjórum svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr í parhúsi á góðum stað, miðsvæðis í Neskaupstað. Eign sem passað hefur verið vel uppá og er talsvert endurnýjuð. Í rúmgóðri stofu/borðstofu er frábært útsýni og parket á gólfi. Parket er einnig í fallegu holi og eldhúsi. Í eldhúsi er fín innrétting og borðkrókur. Flísar eru í þvottahúsi og þaðan er útgengt í bakgarð. Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi, öll með parket á gólfi. Í risi er notaleg sjónvarpsstofa. Bílskúr er nokkuð rúmgóður með bílhurð og góð geymsla er inn af bílskúr. Bílskúrsrými og geymsla er nokkuð hrátt.