INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
NÝTT RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ VIÐ BLÁARGERÐI Á EGILSSTÖÐUM - AFHENT FULLBÚIÐ EÐA TILBÚIÐ UNDIR INNRÉTTINGAR.Fyrirhugað er að byggja fjögurra íbúða raðhús á einni hæð í Bláargerði á Egilsstöðum.
Mögulegt verður að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar með öllum innréttingum og helstu tækjum í eldhúsi
EÐA tilbúnar undir innréttingar þar sem milliveggir verða allir komnir (hvorki sparslaðir né málaðir), lagnagrind komin í loft og bæði rafmagn og vatn komið inn í íbúðina en eftir að draga í allt rafmagn og leggja vatnslagnir.
Bæði afhendingarstig miðast við að húsið sé fullklárað að utan með timburverönd við suðurhlið og lóð grófjöfnuð.
Fullbúnar íbúðir verða afhentar með glæsilegum innréttingum og gólfefnum. Baðherbergi verða flísalögð í hólf og gólf, fataskápar í öllum svefnherbergjum og timburverönd í bakgarði. Húsið verður klætt að utan með Alusink klæðningu í bland við slétt stení. Íbúðirnar geta verið tilbúnar til afhendingar haustið 2024.
Þeir sem tryggja sér fullbúna íbúð á næstu vikum geta valið innréttingar og gólfefni í íbúðina.
--------------------------------------------------------------Húsið samanstendur af fjórum íbúðum:
Tvær 101,3 m² íbúðir með þremur svefnherbergjum.
Fullbúin íbúð: 57,7 milljónir --- Tilbúið undir innréttingar: 46,5 milljónir.
Tvær 141,5 m² íbúðir með þremur svefnherbergjum (32,8 m² bílskúr).
Fullbúin íbúð: 79,9 milljónir --- Tilbúið undir innréttingar 64,5 milljónir.--------------------------------------------------------------Fermetra tala íbúða er birt með fyrirvara þar sem eignin hefur ekki verið byggð.
Ath. ljósmyndir eru af samskonar húsi sem afhent hefur verið nýjum eigendum.Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af brunabótamati) eftir að eignin hefur verið afhent. Reglugerð um skipulagsgjald.Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.