INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel staðsett einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og frístandandi bílskúr. Eldhús endurnýjað árið 2022.Flísar eru í forstofu og þar inn af er geymsla. Eldhús var eins og áður sagði endurnýjað 2022, þar er parket á gólfi og falleg innrétting. Inn af eldhúsi er búr og þvottahús með útgengt í bakgarð. Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parket á gólfi. Á herbergjagangi eru fjögur svefnherbergi, öll með parket á gólfi og sérlega góður fataskápur er í hjónaherbergi. Baðherbergi er flísalagt, þar er rúmgóð sturta og fíbó-plötur á veggjum.
Bílskúr er nokkuð hefðbundinn en fremur hrár.
Sérlega vel staðsett eign á Seyðisfirði.