INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
808,4 m² íbúðar og atvinnuhúsnæði í góðu ástandi við Tjarnarbraut 21 á Egilsstöðum.Á annarri hæð eru tvær íbúðir, annars vegar fimm herbergja íbúð (um 155,2 m² -
er 202,8 m² hjá Fasteignaskrá) og hins vegar fjögurra herbergja íbúð (um 107,6 m² -
er 86,0 m² hjá Fasteignaskrá). Báðar íbúðirnar eru í góðu ástandi og í útleigu.
Á jarðhæð hefur verið ýmiskonar atvinnustarfsemi í gegnum tíðina, þar er góð lofthæð og ýmsir möguleikar hvort sem fara á í einhverskonar atvinnustarfsemi eða útbúa fleiri íbúðir í húsinu. Hluti neðri hæðar er nokkuð stór salur sem er í útleigu í dag.
Í kjallara er mikið og gott geymslupláss.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.