Þiljuvellir 14, 740 Neskaupstaður
49.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á pöllum
6 herb.
170 m2
49.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1958
Brunabótamat
66.500.000
Fasteignamat
35.950.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Mjög fínt 6 herbergja einbýlishús á þremur pöllum, á frábærum stað í bænum með stórum garði. Mjög stutt alla þjónustu, sundlaug, íþróttahús, skóla og matvöruverslun.
Frábært útsýni.


Húsið hefur mikið verið endurnýjað að utan. Skipt var um þakjárn, þakskegg, þakrennur og gluggar eru nýlegir.

Komið er inn í rúmgóða forstofu, á vinstri hönd er gengið inn í bjarta og fallega stofu, L-laga með stórum gluggum. Eldhús er á sömu hæð og að fullu endurgert fyrir tveimur árum og lagt nýtt rafmagn ásamt vatnslögnum.

Við forstofu eru tröppur upp í svefn- og baðherbergi. 3 svefnherbergi eru á efsta palli, eitt stórt hjónaherbergi og tvö minni. Öll herbergin eru með skápum og hefur allt rafmagn verið endurnýjað í þeim á síðasta ári.  Í hjónaherbergi er stór gluggi með dásamlegu útsýni. Baðherbergi er með sturtu og lítilli innréttingu. Skipta þarf um vatnslagnir á baðherbergi.

Við forstofu er einnig gengið niður á neðsta pall hússins. Á hægri hönd er mjög rúmgott herbergi  með stórum og björtum glugga. Allir veggir voru klæddir og nýtt rafmagn lagt. Inni herbergi er lítil kompa sem nú er notuð sem fataskápur. Á vinstri hönd þegar er gengið er niður frá forstofu er stórt þvottahús og þaðan er innangengt inn á annan gang og herbergi ásamt litlu salerni og köldu bíslagi með útgangi í austur. Þessi herbergi þarfnast viðhalds en skipta þarf um vatnslagnir og lagfæra steypuskemmdir.

Stór og fallegur garður en húsuið stendur á 550 m² lóð. Á lóðinni er 10 m² garðskúr, sem byggður var árið 2019.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.