INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Ljómandi fín þriggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Miðgarð 2 á Egilsstöðum. Frábært ústýni!Stofa er fremur rúmgóð með parket á gólfi og útgengt á svalir með einstaklega góðu útsýni. Baðherbergi var að mestu endurnýjað árið 2019, er það flísalagt með sturtu, innréttingu og handklæðaofni. Hiti er í gólfi á baðherbergi og þar er aðstaða fyrir þvottavél. Í eldhúsi er eldri innrétting í ágætu ástandi en nýlega var bætt við innréttinguna og nýju span-helluborði ásamt ofni í góðri vinnuhæð komið fyrir. Ágætur borðkrókur er í eldhúsi og þar er dúkur á gólfi. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum og dúk á gólfi.
Geymsla er tilheyrir íbúðinni er í kjallara. Í húsinu er einnig sameiginlegt þvottahús sem allir íbúar hafa aðgang að.