INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel staðsett einbýlishús á einni hæð við Hamrahlíð 10 á Vopnafirði.Í forstofu og gestasalerni inn af forstofu er dúkur á gólfi. Þvottahús með máluðu gólfi er einnig inn af forstofu. Dúkur er í eldhúsi og borðstofu, í eldhúsi er eldri innrétting. Stofa er nokkuð rúmgóð með teppi á gólfi. Útgengt er úr stofu í garð. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, dúkur er á gólfi í einu þeirra en teppi á tveimur. Dúkur er á baðherbergi, þar er baðkar með sturtu í.
Húsið er farið að láta á sjá s.s. útveggir sem eru talsvert sprungnir. Farið er að sjá talsvert á gluggum og þakkantur er lélegur. Þak er að sögn eiganda í lagi en erfitt var að sjá það við skoðun þar sem snjór var yfir öllu.
Eigendur skora á áhugasama aðila að skoða húsið vel og helst með fagmanni áður en kauptilboð er lagt fram.